Jón Arnór vs. Finland
Jón Arnór að leggja boltann í körfuna gegn Finnum í Laugardalshöll 6. september 2006.
Nú er ég búinn að fá mér flickr account,
http://flickr.com/photos/snorriorn, ótrúlega sniðugt. Hægt að senda myndir af flickr yfir á blogsíðuna sína (sem ég nota nú ekki mikið fyrir þá sem ekki hafa tekið eftir því ;))
Áramót 04-05

Þessi mynd er tekin um áramóti 2004-2005 af Theu frænku minni. Hún, Chanel systir hennar og Bjarki Fannar fóru út að gera skotpall fyrir rakettur. Ég var úti með myndavélina að fylgjast með þeim, í þeirri von að ná einhverjum góðum myndum. Thea var eitthvað ósátt við það og setti upp þennan myndarsvip, en þess ber að geta að Thea (sem er árinu eldri en Bjarki), er mikill prakkari.
Myndin er tekin á Powershot S50 vélina mína, sem ég er búinn að eiga núna í 2 ár. Það fer að líða að því að maður endurnýji græjuna.
Þrítugi kallinn

Þessi mynd er tekin 9. maí síðastliðinn, á afmælisdaginn minn. Ég hélt þá smávægis grillveislu á Gufunesbæjarlóðinni. Þarna stend ég við grillið ásamt Bjarka, sem vildi ólmur aðstoða við allt sem við kom grillinu. Myndin er tekin á Canon EOS 350D með kit linsunni (18-55mm).
Tivoli

Hver elskar ekki Tivoli? Þessi er tekin fyrir utan Tivoli í ágúst í fyrra (2005) á Canon Powershot S50 vélina mína. Fínasta vél sem hefur skilað mér mörgum fínum myndum.
NM 2004

Þessi mynd er tekin eftir Norðurlandamót yngri landsliða í körfubolta í maí 2004. Þá höfðu þrjú af fjórum íslensku liðanna unnið norðurlandatitil og ákváðu margir leikmenn að fagna með því að fara í sturtu í búningunum. Myndin er tekin á
Canon Powershot G2, vél sem pabbi átti og á líklegast enn.
Mynd af Bjarka Fannari
Ætla í nánustu framtíð aðallega að pósta myndum hér inn, hugsanlega smá texta með myndinni ef það er viðeigandi auk upplýsinga um hvernig myndin var tekin.

Myndin er tekin á Canon 350D. Linsa
85mm f. 1.8 USM. Ljósop 1.8, hraði 1/50, ISO 400. Myndina tók ég þegar ég var að prófa þessa linsu í fyrsta skipti.
Fréttir
Þessi var að vinna hjá mér í Bónusvídeó á sínum tíma. Góð stelpa.
Svo eru fréttir, þið megið giska...